Upplýsinga síða hópsins

Trektin eða út með þig!!

07.08.2009 07:15:28 / unnsi

We'll meet again...

Hey boys!
Hvað segiði? Hvernig er stemningin svona eftir að við fórum? Hvað gerðuð þið um Verslunarmannahelgina?
Ég vildi bara nota tækifærið og þakka fyrir góðan tíma á meðan að ég var á landinu. Allt það besta; grillað, smá baskari, bjór, American Style...
Vill einnig nota tækifærið og koma á framfæri beiðni til hans Daða um að hunskast á Facebook áður en að það verður úrelt.
Þá getur maður loksins farið að tagga hann á myndum eins og þessari:
Alltaf flottur hann Daði!

Jæja, ég er bara að reyna að leggja mitt af mörkum svo að þessi síða deyji ekki endanlega.

Pís át
Unnskarinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2009 03:51:25 / unnsi

Hvað er á könnuni

Sælir piltar. Héðan frá Ástralíu er ýmislegt að frétta.

Við erum að fara að koma heim til Íslands þann 28.júní! JEIIII!!


Skelltum okkur á De La Soul með 10 manna live bandi þar sem að þeir tóku alla slagarana sína, sérstakur leynigestur var Dres úr Black Sheep svo var Cut Chemist einnig með sitt eigið show sem var snilld. Magnað Hip hop djamm þar sem var spilað Biggie, Tribe called quest, Wu Tang og meira gott og að sjálfsögðu aðal númerin, De La Soul.


Svínaflensan er ekki ennþá farin að herja á okkur hérna í Melbourne


Ég er að fara að spila í Grand Final í kvöld með Melbourne Uni. Ef við vinnum þá komumst við upp um deild.


Ætlum að skella okkur til London eftir Ísland yfir helgi og heyrst hefur að leynigestir verði með í för.


Hér er orðið það kalt að ég hef þurft að fara í sokka og buxur í síðustu viku.

Ekki meira í bili

Unnar

P.S eins og glöggir lesendur sjá þá er einnig komið að prófa törn þar sem að maður er farinn að blogga.... :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2009 04:49:09 / unnsi

Eiga ekki Arnór og Raggi gítar?

Cyanide and Happiness, a daily webcomic
Cyanide & Happiness @ Explosm.net

Bara svona til þess að setja einhvað inn ákvað ég að henda þessari teiknimynd inn og jafnframt að gefa þeim smá hugmyndir ef þeim vantar stelpur..
Var annars að grúska aðeins í bloggsíðum um daginn og fann þar Árna og Arnórs blogg hafa ekki verið uppfærð lengi.
Svo fer að styttast í heimkomuna drengir, hver kemur með mér á American Style?

Unnar

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2009 22:17:30 / unnsi

Loksins er komið að því, hvað finnst ykkur?

Jæja boys, komið að bloggfærslu frá Unnzo.
Fann mig knúinn til þess að setja inn blogg enda engar smá fréttir að færa ykkur....
COOLIO er á leiðini til Melbourne og verður með tónleika hérna í mars!!


Smellirnir 1,2,3,4, gangstas paradise og I'll see you when you get there eiga efalaust eftir að óma um tónleika höllina og fólk að syngja með.
Ég hélt satt best að segja að kappinn væri í ruglinu og væri bara búinn í öllu svona en ég held að hann hafi verið í einhverjum raunveruleika þætti að gera það bara nokkuð gott.. allavegana...
Á ég að fara? Bara fyrir allt það góða sem hann gerði eða...? Er COOLIO búinn að missa það?
Hvað finnst ykkur?

Holla!

Friður
Unnar


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 10:15:22 / arnor

Myndbönd mánaðarins

Sælir,

þið verðið að tékka á þessu.

Þetta myndband er af fallhlífarstökki/BASE stökki í Noregi. Haldið þið að þið mundið þora þessu? Myndband 1

Og skoðið þetta myndband líka sem ber heitið "One year in 40 seconds." Myndband 2

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2009 17:25:06 / Árninn

Blogg verðlaunin fyrir árið 2008

Sælir Strákar og gleðilegt nýtt ár.
Hér er smá statistic og hin ýmsu verðlaun fyrir blogg ársins 2008.

Besti bloggari ársins: Arnór með hvorki meira né minna en 20 greinar sendar á árinu

Versti bloggari ársins:
Eiginlega Jafntefli milli Daðski, Mása og Robba þar sem að enginn þeirra bloggaði á árinu 2008 en það er lengst síðan Robbi bloggaði eða 8. nóv 2007 þannig að hann fær titilinn.

Titilinn athugsemdasauðurinn fær: Geezerinn fyrir sitt eina blogg á árinu. En grein hans
"Atmosphere/ Afmæli / Grill " fékk hvorki meira né minna en 18 athugasemdir. Þessi kjall verður að fara að senda inn fleir greinar, enda vekja þær athygli lukku og kátínu rétt eins og hann sjálfur

Stysta blogg ársins : Þessi verðlaun hlýtur hann Arnór fyrir Blogg sitt, "Að Tákna" en það innihélt engin fleiri orð. Bara þessi tvö og eina mynd. Taka ber fram að gæði bloggsins eru ekki mæld í orðafjölda.

Lengsta blogg ársins: Það fær hann Arnórinn okkar einnig fyrir bloggið "hugrenningar Arnórs" sem að telur heil 322 orð, eða 320 orðum fleir en í stysta bloggi ársins. Hann er hæfileika maður hann Arnór, getur samið risa ritgerðir og smásagnar verk allt í senn.

Mínar tilnefningar fyrir bloggfærslu ársins eru: Arnór Jónsson með bloggið "Skýringin á Hruninu" Þar sem farið er ofan í skýringu á hruninu á fjármálamörkuðum ... nei djók, ég ætla ekki að fara að tilnefna þá grein í staðinn vill ég tilnefna
"Hugrenningar Arnórs" Ég vill sjá fleiri svona greinar, gaman að þeim.
Unnar með bloggið "Nei ég trúi því ekki eða hvað.....?" þar sem hann sviptir
hulunni af hinni hliðinni á Arnóri, en hér er kvót úr blogginu, sem er kvót úr síðu dómsmálaráðherra bjorn.is
„Góðan dagin björn gerðu þjóðini greiða og skjótu þig svo við hin getum lifað lifinu þu ert ein stæðst hálfiti Islands “
Þetta sagði Arnór Jónsson, en þó ekki Arnórinn okkar og því er þetta svo Hilarius.
Bjarni G (eða Geezerinn) fyrir blogg sitt "Atmosphere / Afæli / Grill ??" , hér er smá kvót úr blogginu: "Einhver sagði við mig um daginn "Hey Bjarni... Ef lífið gefur þér sítrónur... málaðu þá skítinn gylltan!" ..." Priceless.
Og svo að allir fái tilnefnigu fyrir framlag sitt á árinu, þá tilnefni blogg eftir mig : "Hvað varð um Jordy" þarna er á ferðinni rannsóknarblaðamennska af bestu gerð, þar sem grafin eru upp afdrif frönsku barnastjörnunnar Jordy sem gerði garðinn frægan með lögum eins og Allison og "ohh la la baby".

Menn geta skoðað þessar færslur betur með því að skrá sig inn kerfið og fletta þeim upp. Ykkur er frjálst að kasta atkvæði á eitt af þessum bloggum nú eða bara að tilnefna aðrar blogg færslur. Svo vill ég fara að sjá Másann, Dadski og Robbann koma sterkari inn á nýja árinu.

Kv.
Árni fjölskyldu kall.


 


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 22:48:32 / arnor

Þekkið þið húsið?



Þið fáið þúsund stig ef þið vitið í hvaða bíómynd þetta hús var notað?


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 14:04:56 / arnor

Nenni ekki


Jæja maður er núna í prófsviðbjóði, þá rennur hugur manns ósjálfrátt til þess hvað maður á að taka sér fyrir hendur eftir prófin. Unnar og Auður (eða Unnður eins og ég kalla þau) verða því miður ekki með okkur um jólin, þau verða að hrella kengúrur og önnur furðudýr í Ástralíu. Það er spurning hvort við félagarnir getum ekki hist nokkrum sinnum og spilað saman og drukkið jólaöl? Svo er gaman að vita hvort það hafi einhver pælt í gamlárskvöldi?

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 00:48:39 / unnsi

Meistari Daði á afmæli


Daði á afmæli í dag!!
Já, þessi forkunnarfagri piltur á afmæli í dag og er því um að gera að fagna vel og lengi.
Vil ég nota tækifærið sérstaklega og óska honum til hamingju með daginn og vill láta hann vita að ég sakni þess að hitta hann í hverri viku.
Eins og allir vita þá er Daði og hans menn í Leikni að fara að spila á móti aðalliði Njarðvíkur næsta laugardag, þá er skyldumæting að láta sjá sig og styðja við bakið á Daðanum okkar.
Skál Daði!

Kv.Unnar


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 17:29:50 / Árninn

Hver ætlar á Reunion 14. nóv

Jæja stráks, þið hafið eflaust heyrt af þessu árbæjarskóla reunion sem er á players á föstud. 14. nóv.

Ætla menn almennt að mæta og ef svo er, er þá ekki málið að hittast eitthvað fyrir þetta og hita upp?

Update:
Endilega svarið í kommenti hér fyrir neðan hvort þið ætlið að mæta og hvort menn séu ekki til að hittast fyrir þetta, gætum jafnvel verið hjá mér.

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 01:05:39 / arnor

Að tákna....



» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 59475